mengun frá kísilverum.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. En mig langar hins vegar að hnykkja á því er lýtur að íbúunum á svæðinu sem hafa jú þessar áhyggjur, og það eru fleiri en íbúar á svæðinu sem hafa þær. Mig langar að ítreka seinni spurninguna mína í þremur liðum.
Hvað hyggst ráðherra gera til að koma til móts við íbúa í Reykjanesbæ sem vilja ekki hafa þessa mengandi stóriðju í bakgarði sínum?
Kemur til greina að nema úr gildi fjárfestingarsamning ríkisins við Thorsil?
Hvaða aðrar leiðir sér hæstv. ráðherra til að koma til móts við það fólk? Hvernig ætlar hæstv. ráðherra að tryggja að íbúar í Reykjanesbæ njóti vafans, sem er jú mikilvægt?