stjórnmálaástandið í Bandaríkjunum.
Virðulegur forseti. Það blása kaldir vindar að vestan, napur vindur sem hvín, eins og skáldið sagði, og það setur að okkur óhugnanlegan hroll. Það hafa svo sannarlega orðið veðrabrigði. Það sem við í besta falli hentum gaman að, hristum hausinn yfir og töldum fjarstæðukennd ólíkindi fyrir nokkrum mánuðum er orðið að bláköldum veruleika. Við verðum vitni að því að í einu valdamesta ríki heims eru algild lýðréttindi fótumtroðin, í ríki sem kennir sig við frjálsa hugsun, frumkvæði og frelsi einstaklinga til orðs og athafna. Þar er nú gengið fram með offorsi, í þessum grautarpotti mannlífs og þjóðarbrota, í landi sem í raun er byggt innflytjendum frá öllum heimshornum, blöndu af friðsömu fólki í seinni tíð. Heimóttarskapur fær að ráða og heimsbyggðin mænir agndofa á, það virðist ríkja stjórnsýslulegt öngþveiti. Virðingarleysi fyrir einkalífi fólks opinberast og framkoma og málflutningur forsetans einkennist af mannfyrirlitningu.
Þetta gerist í Bandaríkjum Norður-Ameríku sem hefur verið náin samstarfsþjóð Íslendinga í áratugi og stóra plan þjóðarleiðtogans er beinlínis farið að bitna á Íslendingum, grandalausu íþróttafólki. Stórir hópar, jafnvel á hinum pólitíska velli, líta á Bandaríkin sem fyrirheitna landið og hafa farið ófáar í pílagrímsferðir vestur þangað, lofað dásemd þess í ræðu og riti, kropið á altari auðhyggjunnar í lotningu og átt þá ósk heitasta að færa sem flest af gildum sem þar eru í hávegum höfð hingað til lands. Á þá eru meira að segja farnar að renna tvær grímur, og ég segi: Nei takk, ekki meir.
Skilaboð okkar þurfa að vera skýr og fumlaus. (Forseti hringir.) Við höfnum þeirri sýn sem nýr forseti heldur uppi, við höfnum þeirri fyrirlitningu sem nýr forseti sýnir venjulegu fólki og við höfnum þeim (Forseti hringir.)ótta, hræðslu og hatri sem ýtt er undir. Norðurlönd geta nú sýnt í verki dýrmæta samstöðu, ein og sér eða með öðrum Evrópuþjóðum. Það væri verðugt frumkvæði.