146. löggjafarþing — 20. fundur,  31. jan. 2017.

sjúkratryggingar.

80. mál
[15:36]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmönnum fyrir þessa umræðu og hv. flutningsmanni Nichole … Afsakið, ég biðst forláts, ég er búinn að lenda svo oft í því að mitt eigið nafn hefur verið rangt borið fram að það kemur vel á vondan að mig skuli reka í vörðurnar. (Gripið fram í.) Nichole Leigh Mosty. Mig langar að spyrja hv. þingmann í ljósi orða hennar, mér til upplýsingar, um að það þurfi fyrst og fremst að huga að sjúklingunum í þessu. Ég vil taka það fram að ég er mjög samþykkur efni breytinganna sem hefur verið frestað, að þessi þök verði sett á. En hefur á einhvern hátt verið lagt mat á hvort þessi frestun hafi áhrif á sjúklingana? Hér er mat á áhrifum, þar er talað um greiðsluþátttökukerfið og kostnað við það o.s.frv., en ég sé þar enga tilraun til mats á áhrifum á notendur þjónustunnar. Er ástæða til að velta því eitthvað fyrir sér hvort þetta muni hafa þau áhrif að einhverjir muni jafnvel þurfa að fresta einhverjum aðgerðum eða leita sér þjónustu þar til þökunum hefur verið komið á? Ég vil taka það fram að mér sýnist einboðið að samþykkja umrædda tillögu, málið sé komið þangað. En mig langaði að fá útskýringu á þessu og hvort þetta væri eitthvað sem hv. velferðarnefnd hefði skoðað eða hefði komið fram í upplýsingum frá ráðuneytinu.