146. löggjafarþing — 24. fundur,  2. feb. 2017.

einkarekin sjúkrahúsþjónusta.

[11:04]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég vil árétta það er varðar meginhlutverk embættis landlæknis. Mun ekki hæstv. ráðherra leita álits þessa helsta ráðgjafa heilbrigðisþjónustunnar á því hvort hann telji þetta skynsamlega leið, skynsamlega þróun, og ráðlegt fyrir okkur á Íslandi í þeirri stöðu sem við erum í núna?