fæðingar- og foreldraorlof og tryggingagjald.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og fagna því að tillaga um lengingu fæðingarorlofs sé enn og aftur komin fram. Það var búið að gera áætlun um þetta í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur sem tekin var úr sambandi þegar ný ríkisstjórn tók við 2013. Svipuð tillaga um lengingu upp í tólf mánuði, að vísu í einu skrefi og með skiptingunni 5–5–2 lagði þingflokkur Samfylkingarinnar fram haustið 2015. Þannig að ég er virkilega sammála þessari tillögu og styð hana heils hugar.
Það sem ég vil spyrja hv. þingmann út í er fjármögnunin. Gert er ráð fyrir að breytingin verði innan tryggingagjaldsins og skiptingarinnar þar. En við horfum fram á það núna að fæðingum er að fækka. Það má vera að það sé vegna þess að við búum ekki nægilega vel að ungu fólki og það hafi hreinlega ekki efni á að eignast börn eða slái því á frest, og því skiptir þessi tillaga auðvitað miklu máli en það skiptir líka mjög miklu máli í efnahagslegu samhengi að barneignum fjölgi aftur að nýju. Þess vegna vil ég spyrja hv. þingmann hvort það hefði ekki komið til greina þegar verið var að setja þessa tillögu niður að hreinlega greiða þetta úr ríkissjóði en halda inni möguleikanum á því að lækka tryggingagjaldið, sem ég leyfi mér að segja að allir flokkar á Alþingi hafa talað um að væri æskilegt og gott fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.