146. löggjafarþing — 24. fundur,  2. feb. 2017.

fæðingar- og foreldraorlof og tryggingagjald.

84. mál
[11:28]
Horfa

Flm. (Svandís Svavarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það liggur auðvitað fyrir að allir jafnaðarmenn á Alþingi eru stuðningsfólk þessarar tillögu. Það gildir um Vinstri hreyfinguna – grænt framboð og auðvitað þingmenn Samfylkingarinnar og fleiri sem vilja kenna sig við jöfnuð og félagshyggju hér á Alþingi — og kinka ég hér kolli bæði til hægri og vinstri í þingsalnum.

Það er rétt sem kemur fram í spurningu hv. þingmanns að þessi tillaga er í jafnvægi, þ.e. hún leggur til ákveðin útgjöld og ákveðna leið til að fjármagna þessa ráðstöfun. Ég tel, og eins og fram hefur komið ítarlega og ítrekað í málflutningi Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, hvort sem var í stjórnarmyndunarviðræðum, í aðdraganda kosninga eða hvað það er, að við eigum með opin augun og óttalaus að vera tilbúin að afla tekna fyrir betra samfélag. Það höfum við alltaf verið tilbúin að gera. Það að greiða ráðstöfun af þessu tagi úr ríkissjóði tel ég koma mjög vel til greina. Ég átta mig á því að umræðan um stöðu tryggingagjaldsins hefur verið rík og mikil og miklar væntingar um að lækka það. En hér er hins vegar lagt til að miðað við núverandi stöðu tryggingagjaldsins sé hægt að ráðast í þessar breytingar miðað við rammann eins og hann liggur fyrir. Þetta er enn eitt dæmið um að við í þingflokki Vinstri grænna viljum leggja okkur fram um að öll okkar tillögugerð og umbúnaður um tillögur sé með ábyrgum hætti.