fæðingar- og foreldraorlof og tryggingagjald.
Herra forseti. Þetta eru skínandi góðar umræður um þetta mikilvæga mál. Mér heyrist vera meiri samhljómur en minni í kjarna þess. Ég verð að taka undir það sem hér var fjallað um síðast, að þetta snýst um grundvallarréttindi barns til samvista við foreldra sína ef því verður við komið, þ.e. ef báðir foreldrar geta komið að uppeldi barns. Við megum ekki gleyma því að þetta snýst fyrst og fremst um það en ekki rétt foreldranna. Þó að það sé hin hliðin á peningnum er þetta réttur barnsins til samvista við foreldra sína.
Ég tek líka undir að við eigum að stíga varlega til jarðar í því að fjölga undanþágum í þessu efni. Auðvitað breytist samfélagið reglulega og við getum alltaf skoðað lögin út frá því, og það er mjög nauðsynlegt, en ég held að ég myndi ekki styðja það að breyta rétti einstæðra foreldra yfir í að annað foreldrið geti tekið allt fæðingarorlofið. Mér finnst það ekki skynsamleg nálgun. Ég myndi vilja nálgast stöðu einstæðra foreldra út frá öðrum forsendum í samhenginu en að ganga á fæðingarorlofið með því að koma beinlínis í veg fyrir að foreldrar geti báðir tekið fæðingarorlof. Það kemur ágætlega fram í lögunum að ef aðstæður eru þannig, hvort sem það er vegna andláts eða þess háttar, getur einstæða foreldrið fengið viðbótargreiðslur.
Ég er líka alveg sammála þeirri ákvörðun að hækka greiðslur í fæðingarorlofi. Ég held að það hafi verið mjög nauðsynlegt því að eins og hér hefur komið fram hefur þeim körlum fækkað sem taka fæðingarorlof. Það er ekki gott því að markmið sjóðsins var að draga þá frekar inn í það hlutverk að njóta samvista við nýfædd börn sín. Þegar óhjákvæmilega þurfti að lækka tekjuviðmiðið í kjölfar hrunsins, eins og svo margt annað, dró úr því að feður tækju fæðingarorlof. Það voru líka vonbrigði að viðmiðið skyldi ekki vera hækkað fyrr en raun bar vitni í tíð síðustu ríkisstjórnar. Það voru enn fremur vonbrigði þegar tekjustofn Fæðingarorlofssjóðs var helmingaður á þeim tíma í staðinn fyrir að byggja vel undir tryggingagjaldið. Þó að staða sjóðsins sé ágæt í augnablikinu er samt fyrirhuguð lækkun á tryggingagjaldinu og má alveg spyrja sig hvort það sé gott eða skynsamlegt að halda því óbreyttu og reyna frekar að auka við greiðslur Fæðingarorlofssjóðs til þess að geta gert hvort tveggja, eins og hér hefur verið nefnt, að lengja fæðingarorlofið um leið og við áætlum áframhaldandi hugsanlegar hækkanir greiðslna til foreldra. Það er bæði tekjutengd ákvörðun og kynbundin. Þess vegna þurfum við að reyna að lagfæra fæðingarorlofskerfið til samræmis við þann upprunalega tilgang að jafna stöðu foreldra til töku á fæðingarorlofi.
Það er heldur ekki í takt við jafnréttishugsjónina að skerða Fæðingarorlofssjóðinn eða byggja ekki betur undir hann og veldur því að konur verða áfram lengur utan vinnumarkaðar en karlar, eins og verið hefur. Þá viðhöldum við um leið þeim launaójöfnuði sem við höfum glímt við og glímum enn við. Ég held að við ættum frekar að byggja undir þennan sjóð og sjá til þess að barn geti notið samvista við báða foreldra. Við þurfum að vanda vel til verka þegar við endurreisum kerfið þannig að það verði eins og talað var um árið 2012 að það ætti að vera, þegar það kom fram með breyttum forsendum.
Hér var talað eins og hvort tveggja gæti ekki átt sér stað í senn, að hækka greiðsluþakið og lengja orlofstímann. Ég er ekki sammála því. Þrátt fyrir að 500.000 kr. séu ekki óskaplega há fjárhæð hjá mörgum skiptir hún máli, sérstaklega fyrir margt ungt fólk sem er að koma sér þaki yfir höfuðið, er jafnvel nýútskrifað og stendur í barneignum. Þá þurfum við kannski að gera betur á fleiri sviðum. Við þurfum að breyta tekjuviðmiðinu varðandi barnabæturnar. Við getum líka gert það gagnvart vaxtabótum hjá yngra fólki sem er að koma sér þaki yfir höfuðið. Við getum komið til móts við barnafólk á margan annan hátt en í gegnum fæðingarorlofið.
Ég man að þegar við ræddum tillögu Samfylkingarinnar á síðasta þingi kom fram að ungar mæður teldu erfitt að lifa af þeim fæðingarorlofgreiðslum sem þá voru í boði, jafnvel svo að þær treystu sér ekki til að búa einar heldur bjuggu í foreldrahúsum. Ég held að það verði ekki jafnað að neinu leyti með því að taka réttinn af öðrum heldur einmitt frekar að reyna að brúa bilið með lengingu orlofs fram að leikskóla þannig að báðir foreldrar hafi tækifæri til að njóta samvista við ungt barn sitt.
Fæðingum hefur fækkað, það er morgunljóst, bæði vegna hækkandi lífaldurs og vegna þess að konur eru mun meira úti á vinnumarkaðnum, sem betur fer, sem hefur leitt til þess að þær eru eldri þegar þær eignast börn. Á sama tíma hafa feður ekki tekið fæðingarorlof eða hafa minnkað það vegna tekjuviðmiðsins. Þetta skiptir alla foreldra máli, hvort sem þeir eru ungir eða eldri.
Hv. þingmaður talaði um við hvað ætti að miða tekjur eða fæðingarorlof. Ef maður er með rúma milljón á mánuði, er þá ekki allt í lagi að fæðingarorlofið skerðist? Þó að við viljum jafna rétt allra til fæðingarorlofstöku viljum við frekar hugsa til þess að tekjulágt fólk eða millitekjufólk hafi tækifæri til að njóta samvista við barn sitt og nýta sér allt fæðingarorlofstímabilið.
Fólk sem er alla jafna með háar tekjur hefur betra rými til þess og á auðveldara með að lækka í tekjum um einhvern tiltekinn tíma en fólk sem er í lægri enda tekjuviðmiðanna, sérstaklega yngra fólk sem er kannski nýútskrifað með námslán og ekki komið með stórkostlega há laun. Þegar við veltum fyrir okkur hvernig við jöfnum stöðuna annars vegar og hins vegar hverjir geta gert þetta vil ég fyrst og fremst horfa á málið; fæðingarorlofið, barnabætur, vaxtabætur, alla aðstoð við foreldra; út frá stöðu fólks, þ.e. hafa tekjuviðmið. Mér finnst það skynsamlegt af því að því miður fara þeir sem standa verr fyrr út á vinnumarkaðinn eftir að þeir eignast barn og leita annarra leiða til að koma barni sínu fyrir, í umsjá ættingja eða eitthvað slíkt, til að geta haft ofan í sig og á.
Þess vegna held ég að við eigum að láta þetta snúast um barnið og tækifæri foreldra til að njóta samvista við það. Við getum gert það á margan annan hátt en þennan. Hér var vissulega talað um grá svæði, sveitarfélög og annað slíkt. Ég sá ekki alveg hvernig það ætti að vera, áttaði mig ekki alveg á því, nema það ætti að koma í gegnum húsnæðisstuðning eða annan stuðning við einstæða foreldra eða foreldra sem eru illa staddir, en ríkissjóður getur gert þetta svona, a.m.k. eftir þessum þremur leiðum.
Ég er ánægð með að sjá hversu margir ætla að taka þátt í þessari umræðu, hversu jákvætt fólk virðist almennt vera til þessa frumvarps. Það má vel vera að það taki einhverjum breytingum í meðförum nefndarinnar og að fram komi einhver sjónarmið sem við ekki höfum áttað okkur á. Þá vænti ég þess að það verði til góðs en ekki til að fjölga undanþágum eða brjóta upp fæðingarorlofskerfið. Ég held að hugmyndafræðin á bak við það sé góð þannig að við eigum ekki að þurfa að fara inn í þann grunn.
Virðulegi forseti. Ég ætla að láta þetta duga. Það er ánægjulegt að sjá að hér virðist ríkja almennur velvilji í garð þessa máls.