fæðingar- og foreldraorlof og tryggingagjald.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni Elsu Láru Arnardóttur fyrir ræðu hennar og þau sjónarmið Framsóknarmanna sem hún flutti inn í þessa umræðu. Ég segi bara skárra væri það nú, því að Framsóknarflokkurinn á auðvitað merka arfleifð á þessu sviði og væntanlega er eitt það merkilegasta sem fyrrverandi ráðherra flokksins, Páll Pétursson, skilur eftir sig hlutdeild hans í löggjöfinni á þessu sviði. Það er allt í góðu lagi með að halda því til haga og nefna nafn þess ágæta mæta manns sem hér var lengi meðal okkar á þingi.
Það er að sjálfsögðu rétt og skylt að velferðarnefnd fari yfir ýmis mál í tengslum við þetta frumvarp og þar á meðal spurninguna um undanþágur frá þeirri meginreglu að báðir foreldrar hafi sjálfstæðan rétt til orlofstökunnar og hann sé ekki yfirfæranlegur nema í undantekningartilvikum og að farið verði yfir þau undantekningartilvik, hvort þau eiga að einhverju leyti að breytast eða hvort menn vilja hugsanlega setja á fót eitthvert ferli fyrir undanþágunefnd eða undanþáguferli fyrir umsóknir, um jaðartilvik sem ekki falla almennilega inn í undanþáguákvæði laganna. Ég er ekki að útiloka slíkt en endurtek það sem hv. þingmaður nefndi sjálf, að það þarf að stíga varlega til jarðar í því.
Frumvarpið er auðvitað fyrst og fremst nauðsynlegar lagabreytingar til að lengja fæðingarorlof að óbreyttum lögum að öðru leyti. Ég er ekki þeirrar skoðunar að það þurfi víðtæka grundvallarendurskoðun á þessum lögum. Löggjöfin er í grunninn mjög góð og á að standa. En að sjálfsögðu er alltaf rétt og skylt að fara yfir það hvort eitthvað megi betur fara ef aðstæður í þjóðfélaginu hafi breyst þannig að það kalli að einhverju leyti á endurskoðun. Þar á meðal þetta sem þegar hefur verið nefnt. Ég tek sömuleiðis undir það og nefndi það í minni ræðu að ég tel að stefna eigi að því að greiða full viðmiðunarlaun í fæðingarorlofi upp að einhverjum lágmarkstekjumörkum. Ef við hugsum okkur lægstu umsamin laun, sem eiga víst að tosast í 300 þús. kr. á árinu 2018, er þá ástæða til að skerða það sem greiðslu í fæðingarorlofi? Ég held ekki. Einhvers staðar þar fyrir ofan ætti að fara að koma til sögunnar eitthvert hlutfall af viðmiðunarlaunum sem greiðsla í fæðingarorlofi.