fæðingar- og foreldraorlof og tryggingagjald.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Svandísi Svavarsdóttur og Vinstri grænum fyrir að leggja þetta mál fram. Hér er um að ræða málefni sem hefur lengi verið ofarlega í mínum huga og reyndar okkar allra í Bjartri framtíð. Við höfum talað fyrir að hámarksfjárhæðir fæðingarorlofs verði hækkaðar í öruggum skrefum nú á kjörtímabilinu og innan flokksins er mikið talað um mikilvægi þess að lengja einnig fæðingarorlofið.
Við teljum það einfaldlega vera réttindi barna og foreldra. Og þar með er það bæði samfélagsmál og jafnréttismál.
Hér vil ég nefna út frá persónulegri reynslu að ég á margar vinkonur í Bandaríkjunum sem fara ekki aftur út að vinna eftir að hafa eignast börn. Það er ekki í boði. Það er ekkert fæðingarorlof. Því er eingöngu stýrt af almennum vinnumarkaði. Ein vinkona mín er lögfræðingur og hún gat ekki brúað kostnaðarbilið með lögfræðingslaunum sínum þannig að börnin hennar gætu farið í góða leikskóla. Þegar ég sjálf var ólétt að mínu fyrsta barni bjó ég í Bretlandi. Þar sem ég hafði ekki verið í vinnu hjá fyrirtækinu sem ég var hjá nógu lengi átti ég eingöngu rétt á níu vikum sem boðið var upp á af breska ríkinu. Breska ríkið býður upp á lágmarksorlof og fyrirtækið tekur svo við. Ég velti fyrir mér þar sem við ræðum þetta sem samfélagsmál: Hver er ábyrgð vinnumarkaðarins í þessu efni? Ég varpa þeirri spurningu fram.
Ég vil einnig þakka fyrir tækifærið til að vinna með þetta mál í hæstv. velferðarnefnd og tel að með því að hlusta á umræður í þingsalnum í dag munum við ná góðum umræðum og væntanlega samstöðu. Ég hlakka persónulega til að taka á mig þá ábyrgð sem mér er falin sem formaður í hæstv. velferðarnefnd, að vinna með þessi málefni.
Af því að þetta er samfélagsmál vil ég koma á framfæri sjónarmiðum frá þeim hluta samfélagsins sem axla mun ábyrgðina sem fylgir ákvörðunum okkar um að breyta þessum lögum. Sú ábyrgð tengist því hvernig við sjáum fyrir okkur að brúa bilið milli loka fæðingarorlofs og upphafs leikskólavistar í leikskólum sem eru reknir eða fjármagnaðir af sveitarfélögunum.
Eins og ég nefndi í ræðustól í gær glímir leikskólinn okkar við alvarlegan skort á leikskólakennurum. Við verðum að huga vel að því hvað tekur við í lok tólf mánaða fæðingarorlofs. Sköpum við með þessu enn stærri vanda fyrir foreldra, að brúa bilið milli tólf mánaða til átján eða upp að 24 mánuðum? Eru til nægilega góð úrræði þar?
Sem leikskólastjóri hef ég unnið hinum megin við borðið og þekki örvæntinguna og erfiðleikana sem fjölskyldur glíma við þegar það kemur að því að brúa þetta bil. Reykjavíkurborg, sem ég hef starfað lengi hjá, hefur einnig verið að vinna með þessi málefni og ég tel að það sem við gerum hér muni hafa gríðarlega áhrif á þróun á leikskólastigi.
Ég vil fjalla aðeins um skýrslu sem gerð var á vegum starfshóps um að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla og skilað var til borgarráðs í Reykjavíkurborg þann 28. maí 2015. Markmið hennar var að skoða sérstaklega lengingu fæðingarorlofs, dagforeldrakerfið og ungbarnaleikskóla sem úrræði sem tekur við. Einnig var starfshópnum falin sú ábyrgð að stilla upp mismunandi sviðsmyndum og skrefum miðað við hvenær vist í leikskóla hefst; miðað við tólf mánuði og átján mánuði. Það sem ég vil ræða sérstaklega sem fram kemur í þessari skýrslu, þótt hægt væri að ræða margt og mikið, er að áætluð útgjöld hjá Reykjavíkurborg munu aukast um 5,8 milljarða króna, ef ég man rétt. Síðustu tvö ár hefur verið rætt í fjölmiðlum um gríðarlega mikla skerðingu og erfiðleika Reykjavíkurborgar við að reka leikskóla nú þegar. Þessir 5,8 milljarðar eru ef til vill kvíðaefni. Og það er bara ef öll tólf mánaða börn fengju vist á leikskóla. Einnig mun fjölgun barna í leikskólum kalla á mikla fjölgun starfsmanna, eða um 515 stöðugildi samkvæmt skýrslunni. Ég minni á að skýrslan var skrifuð 2015. Tölur eru núna verulega miklu hærri því að leikskólakennarar og starfsfólk leikskóla fengu kjarabót.
Ég varpa því fram að við búum við mikinn skort á faglærðum leikskólakennurum. Hver tekur við þessum 515 stöðugildum? Það er mjög mikilvægt að við höfum það í huga og að samráð verði haft um þetta samfélagsmál við Kennarasambandið, menntakerfið og velferðarkerfið, að við stöndum saman um að hugsa um hvað við gerum.
Augljóslega þarf margt að hafa í huga og þar er mikilvægt að við horfum til menntakerfis og velferðarkerfis í okkar starfi. Þar nefni ég aftur að sú ákvörðun sem við stöndum frammi fyrir er samfélagsmál og snertir marga fleti í samfélagi okkar. Rétt er að málefnið er bæði brýnt og mikilvægt. Hér er um að ræða hagsmuni barna, foreldra og samfélagsins sem heildar sem við þurfum að gæta vel að. Mikilvægt er að við vöndum okkur og skoðum öll þau sjónarmið sem hér hafa verið nefnd.
Ég þakka aftur fyrir umræðuna og hlakka til vinnunnar sem liggur fyrir okkur. Ég tel það ekki síður mikilvægt, eða jafnvel mikilvægast, að haft verði öflugt samráð við samfélagið í starfi okkar. Ég hlakka til að hefjast handa eins og margir aðrir.