146. löggjafarþing — 25. fundur,  6. feb. 2017.

beiðni um sérstakar umræður.

[15:03]
Horfa

Forseti (Unnur Brá Konráðsdóttir):

Rætt var um sérstakar umræður á fundi þingflokksformanna og eins á forsætisnefndarfundi í morgun þannig að farið var yfir þessi mál og þar reifað hvaða umræður það væru sem væru helstu áherslumál þeirra flokka sem óskað hafa eftir umræðum. Ég geri ráð fyrir að póstur verði sendur út hið fyrsta um hvaða umræða verður á morgun, en ég þekki til þess að sá undirbúningur hefur staðið yfir alllengi.