146. löggjafarþing — 28. fundur,  9. feb. 2017.

tilkynning um nýjan þingmann.

[11:00]
Horfa

Forseti (Unnur Brá Konráðsdóttir):

Við andlát Ólafar Nordal, 1. þm. Reykv. s., tekur Hildur Sverrisdóttir, 1. varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, sæti á Alþingi sem aðalmaður. Hildur Sverrisdóttir verður 8. þm. Reykv. s., Sigríður Á. Andersen 4. þm. og Brynjar Níelsson 1. þm. kjördæmisins.