146. löggjafarþing — 28. fundur,  9. feb. 2017.

heilbrigðisáætlun og hjúkrunarheimili.

[11:05]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Óttarr Proppé) (Bf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Hv. þingmaður spyr mig til að byrja með um þingsályktunartillögu þingmanna Framsóknarflokksins um heilbrigðisáætlun. Því er til að svara að sú þingsályktunartillaga rímar að mörgu leyti ágætlega við yfirlýst markmið ríkisstjórnarinnar og mín sem heilbrigðisráðherra að vinna að því að móta heildstæða heilbrigðisstefnu. Undirbúningur að slíkri vinnu er að komast af stað. Auðvitað er ríkisstjórnin nýtekin við, ef svo má segja, og þessar fyrstu vikur í embætti hafa verið ansi viðburðaríkar og margt sem hefur þurft að vinna að. En það er mikil vinna sem hefur farið fram og hægt er að nota sem grundvöll að vinnu við heilbrigðisstefnu og mikilvægt að byrja á því að taka þá vinnu upp og að kynna sér það sem þegar hefur verið skoðað.

Varðandi hjúkrunarrými á Suðurlandi er vissulega rétt að þar er þrýstingur, ekki síst vegna lokunar Kumbaravogs sem var hreinlega óhjákvæmileg vegna margítrekaðra kvartana um aðstöðuna og húsnæðið sem hafði því miður ekki tekist að sinna. En góðu fréttirnar eru að gengið hefur ágætlega að koma íbúum Kumbaravogs fyrir á öðrum stöðum og á stöðum þar sem íbúarnir hafa óskað eftir að fá að vera. Að mér skilst er búið að finna pláss fyrir nokkurn veginn alla íbúa og flestir eða margir þeirra eru þegar fluttir.

Ég verð að koma að fleiri spurningum úr máli hv. þingmanns í seinna svari.