146. löggjafarþing — 29. fundur,  21. feb. 2017.

varamenn taka þingsæti.

[13:30]
Horfa

Forseti (Unnur Brá Konráðsdóttir):

Borist hefur bréf frá 9. þm. Suðvest., Eygló Harðardóttur, um að hún geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Þann 20. febrúar tók því sæti á Alþingi sem varamaður fyrir hana Willum Þór Þórsson. Hann hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.

Borist hefur bréf frá 4. þm. Norðaust., Njáli Trausta Friðbertssyni, um að hann geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Þann 17. febrúar tók því sæti á Alþingi sem varamaður fyrir hann Arnbjörg Sveinsdóttir. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.