146. löggjafarþing — 29. fundur,  21. feb. 2017.

vísun skýrslna Ríkisendurskoðunar til nefnda.

[13:32]
Horfa

Forseti (Unnur Brá Konráðsdóttir):

Með bréfi, dagsettu 8. febrúar sl., hefur forseti óskað eftir því við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, samanber ákvæði 8. töluliðar 1. mgr. 13. gr. þingskapa, að hún fjalli um skýrslur Ríkisendurskoðunar, um loftgæði á Íslandi, umhverfi og heilsu, um sérstakan saksóknara og eignasölu Landsbankans hf. 2010–2016.

Einnig hefur forseti óskað eftir því með bréfi, dagsettu 8. febrúar sl., við fjárlaganefnd, samanber ákvæði 5. töluliðar 1. mgr. 13. gr. þingskapa, að hún fjalli um skýrslur Ríkisendurskoðunar, um endurskoðun ríkisreiknings 2015 og um framkvæmd fjárlaga janúar til júní 2016.