brottvísun bresks ríkisborgara á leið til Bandaríkjanna.
Herra forseti. Breska stórblaðið The Guardian greindi frá því í gær, mánudag, að breskum ríkisborgara hefði verið haldið eftir á Íslandi þegar hann millilenti á leið sinni til Bandaríkjanna fimmtudaginn 16. febrúar síðastliðinn. Maðurinn er 25 ára stærðfræðikennari og var að fylgja grunnskólanemendum sínum á skólaferðalagi. Hann var færður við vegabréfsskoðun til nánara eftirlits og svo færður því næst á hótel án nokkurra útskýringa, uppgötvaði þar að farangri hans var haldið eftir og dvaldi svo hér á landi án nokkurra útskýringa íslenskra yfirvalda í tvo daga áður en skólinn sem hann starfar við bókaði fyrir hann flug aftur til Bretlands. Maðurinn heitir Juhel Miah og er múslimi frá Wales. Samkvæmt The Guardian var hann með lögmætt vegabréf og vegabréfsáritun til Bandaríkjanna.
Breska utanríkisráðuneytið hefur staðfest að það viti af máli herra Miah. Sendiráð Bretlands er með málið á sinni könnu hér á landi og samband hefur verið haft við bandaríska sendiráðið af hálfu breskra yfirvalda, þ.e. bandaríska sendiráðið á Íslandi. Velskir þingmenn hafa mótmælt þessum aðgerðum.
Nú heyrir vegabréfaeftirlit og störf lögreglu undir dómsmálaráðherra. Því beini ég fyrirspurn minni til hennar:
Hver er skýring ráðherra á þeim aðgerðum sem voru framkvæmdar af hálfu íslenskra yfirvalda og beindust að breskum ríkisborgara á leið sinni til Bandaríkjanna?
Hver er ástæðan fyrir því að íslensk stjórnvöld héldu manninum eftir hér á landi og á hvaða grunni voru þær ákvarðanir teknar?
Hver er ábyrgð íslenskra stjórnvalda gagnvart fólki sem komið er svona fram við?