146. löggjafarþing — 29. fundur,  21. feb. 2017.

brottvísun bresks ríkisborgara á leið til Bandaríkjanna.

[14:06]
Horfa

Rósa Björk Brynjólfsdóttir (Vg):

Herra forseti. Mér þykir leitt að heyra að helsti yfirmaður dómsmála hér á landi viti ekki um málið. En ég vil ítreka hver ber ábyrgð á því að lögreglan og vegabréfaeftirlitið, sem heyra undir hæstv. ráðherra, fóru í þessar aðgerðir gagnvart hr. Juhel Miah. Veit hæstv. ráðherra af því hvort viðlíka aðgerðir gagnvart ríkisborgurum annarra landa hafi átt sér stað hér á landi. Ef svo er, vill hún greina okkur frá því hér?