146. löggjafarþing — 29. fundur,  21. feb. 2017.

brottvísun bresks ríkisborgara á leið til Bandaríkjanna.

[14:07]
Horfa

dómsmálaráðherra (Sigríður Á. Andersen) (S):

Virðulegur forseti. Eins og fram kemur er þetta nýskeð. Ég verð bara að viðurkenna að málið hefur ekki komið inn á borð dómsmálaráðuneytisins. Ég hef engar upplýsingar um það. Íslensk stjórnvöld hafa engar upplýsingar um ákvörðun Bandaríkjamanna gagnvart þessum breska ríkisborgara. Ég vona að hv. þingmaður virði mér það til vorkunnar að eins og málið liggur er það er ekki beint á sviði ráðuneytisins, a.m.k. ekki enn sem komið er. Það er auðvitað eðlilegt og sjálfsagt að bæði mitt ráðuneyti og fleiri ráðuneyti skoði þetta mál og fylgist með því. Fáum við einhverjar frekari upplýsingar mun auðvitað ekki standa á mér eða mínu ráðuneyti að upplýsa um tilvik sem þessi ef þau verða tíðari á íslenskri grundu.