146. löggjafarþing — 29. fundur,  21. feb. 2017.

skýrsla um niðurfærslu verðtryggðra fasteignalána.

[14:41]
Horfa

forsætisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Þetta hefur verið ágætisumræða sem dregur t.d. fram áherslumun milli flokkanna. Það truflar mig ekki að fjármunir fari frá ríkissjóði til heimilanna. Heimilin sem efnahagsstærðir skipta gríðarlega miklu máli. Við höfum náð árangri í að bæta fjárhagsstöðu heimilanna langt umfram nágrannaþjóðir okkar.

Hér er fullyrt að bróðurpartur aðgerðanna hafi bara farið til ríkasta fólksins. Þetta er alrangt. Það voru að sjálfsögðu fjárhæðamörk í þessari aðgerð. Ef við skoðum það mengi sem fékk hlutdeild í þessari aðgerð þá fóru 24% til heimila með innan við 4 milljónir í árstekjur, 24% heildarfjárhæðarinnar. Hversu mikið fór til heimila með 4–6 milljónir í árstekjur? Jú, 19%. Ef við bætum síðan við þeim sem voru með 6–8 milljónir í árstekjur þá erum við komin með önnur 17%. Þetta er meiri hluti aðgerðarinnar sem fer til heimila sem eru með undir 8 millj. kr. (Gripið fram í.) Samt er látið sem svo að þetta sé aðgerð sem eingöngu snúi að þeim sem hafa það best og hafa mest á milli handanna. Það er betri lýsing á þeim aðgerðum sem áður hafði verið gripið til og kjósendur höfnuðu algerlega við fyrsta tækifæri þegar þeim var hleypt að kjörkössunum.

Svo er spurt um önnur mál og húsnæðismálastefnu í víðara samhengi. Við erum nýbúin að afgreiða fjölda frumvarpa sem gjörbreyta húsnæðismarkaðnum á Íslandi. Má ég nefna húsnæðisbætur, má ég nefna samkomulag um stofnframlög vegna félagslegs húsnæðis og lagaumhverfið um félagslegt húsnæði? Má ég nefna að barnabótum hefur verið beint í auknum mæli til þeirra sem minni hafa tekjurnar? Svo höfum við verið að fella niður skerðingar og bæta verulega í í almannatryggingar.

Það er búið að gera svo margt á undanförnum árum til þess að taka betur tillit til bágrar stöðu margra þjóðfélagshópa. En það er ekki hægt að taka eina aðgerð sem ávallt var skýrt í hvaða tilgangi var sett saman (Forseti hringir.) og segja: Þessi aðgerð lýsir stefnu síðustu ríkisstjórnar. Nei, það þarf að skoða heildarmyndina.