146. löggjafarþing — 30. fundur,  22. feb. 2017.

almannatryggingar.

150. mál
[17:04]
Horfa

Smári McCarthy (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka fyrir þessi ágætu svör, svolítið sláandi að vísu. En það vantaði svar við spurningu nr. 2 um það hvort það tíðkaðist að samþykkja lög sem hafa virkni aftur í tímann. Nú skil ég vel að það þurfi að leiðrétta þessi mistök enda mjög gott mál að þau séu leiðrétt. Það er alveg áhugaverð spurning hvernig þetta kom til hið fyrsta, en það er annað mál. En auðvitað á að leiðrétta mistök. Ég er bara að reyna að átta mig á ferlinu.