almannatryggingar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Brynjari Níelssyni fyrir athugasemdina og fyrir að útskýra skilning sinn og sýn á þessu máli.
Ég er enginn lögfræðingur. Mér finnst skipta mestu máli að benda á vinnubrögðin sem eru í gangi í þessu húsi, á þessu þingi. Það er þannig að þetta eru mistök sem verða þegar hlutunum er hraðað í gegn og fólk hefur ekki tíma til þess að rýna í málin almennilega, þá kemur þetta fram. Mér finnst svo furðulegt að ríkið eigi ekki að axla ábyrgð á svoleiðis mistökum af því að ef ríkið þarf ekki að axla ábyrgð þá halda þessi vinnubrögð áfram endalaust og það breytist ekki neitt. Hvenær eigum við að axla ábyrgð á þessu og fara að breyta hlutunum þannig að þetta komi ekki fyrir aftur?