146. löggjafarþing — 30. fundur,  22. feb. 2017.

almannatryggingar.

150. mál
[17:35]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er í lagi að leiðrétta mistök og þau á ekki endilega að leiðrétta afturvirkt eins og ég hef verið að segja. Ég er ekki endilega að segja að við ættum að borga út þessa 5 milljarða. Ég er að segja að mér líst ekkert á að samþykkja þetta fyrr en fyrir liggur að við munum ekki mögulega síðar þurfa að greiða þessa 5 milljarða eftir að þetta mál fer fyrir dómstóla, að við verðum ekki bótaskyld gagnvart þeim sem mögulega höfðu lögmætar væntingar samkvæmt þessum ákvæðum. Við hv. þingmaður getum ekki ein sest í dómarasæti um það. Við erum ekkert endilega hæfust til þess að meta hvort svo sé eða ekki.

Við erum að tala um almenn prinsipp sem eru þau að það á ekki að setja afturvirk lög sem geta haft íþyngjandi afleiðingar í för með sér fyrir þá sem fyrir þeim verða. Stundum kostar bara sitt að standa vörð um réttarríkið.