146. löggjafarþing — 30. fundur,  22. feb. 2017.

almannatryggingar.

150. mál
[17:39]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Nú langar mig að hv. þingmaður útskýri aðeins það sem ég taldi mig heyra hérna, en hann nefndi að lögin væru nýbirt. Tóku þau ekki gildi 1. janúar? Hvenær nákvæmlega birtust lögin og hvenær var farið að greiða samkvæmt nýjum lögum sem átti að komast í framkvæmd 1. janúar?