heildstæð stefna í málefnum einstaklinga með heilabilun.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Guðjóni S. Brjánssyni fyrir svarið. Það er rétt sem kemur fram hjá honum að við erum lítil og fámenn þjóð og jafnvel töluvert stofnanasinnuð. Það er líka rétt sem hann segir að þessi sjúkdómur leynist lengi vel og læknar veigra sér við því að greina hann þar til frekari einkenni eru komin fram. En það sýnir bara mikilvægi þess að við fáum efnislega umræðu um þetta mál í hv. velferðarnefnd og förum yfir það af hverju Ísland er nú eitt örfárra Evrópuríkja og jafnframt eina norræna ríkið sem ekki hefur mótað heildstæða stefnu í málefnum fólks með heilabilun og einstaklinga með alzheimersjúkdóm eða aðra skylda hrörnunarsjúkdóma. Við köllum eftir upplýsingum um samstarfsnefndina sem getið er um í greinargerðinni og skilaði áliti um málefni aldraðra til félags- og húsnæðismálaráðherra í september 2016.
Eins og fram kemur í greinargerð benti sú nefnd í niðurstöðum sínum á mikilvægi þess að komið yrði á miðlægri skráningu á fjölda einstaklinga með heilabilun og að stuðningur og samráð yrði aukið við aðstandendur sem sinna umönnun við fólk með heilabilun. Ég tel að það sé mjög mikilvægt því að það er það fólk sem þekkir hvað best til í þessum efnum. Ég hlakka til umræðunnar og að vinna að málinu í hv. velferðarnefnd.