146. löggjafarþing — 31. fundur,  23. feb. 2017.

dagskrá næsta fundar.

[10:36]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Við skiptum náttúrlega um skoðun á grundvelli upplýsinga. Nýjar upplýsingar komu fram. Þegar forsætisnefndarleiðin virkaði ekki, eins og aðilar vinnumarkaðarins hafa sagt, þá reynum við aðra leið. Þetta er önnur leið og þetta er leið sem þýðir í rauninni að kjararáð fari að lögum.

Ástæðan fyrir því að málið kemur fram á þessum tímapunkti er sú að nú er alveg ljóst og hefur verið sagt að kjarasamningar muni líklega ekki halda. Þetta væri leið til sátta fyrir Alþingi. Alþingi myndi stíga skref í átt til sátta á vinnumarkaði. Það er það sem við getum gert. Ástæðan fyrir því að málið var ekki komið fram á þriðjudeginum og hefur ekki verið borið upp á öðrum forsendum er sú að það tafðist á nefndasviði, það átti eftir að klára það þar. Við þingmenn þurfum alltaf að hlaupa til nefndasviðs, sem á að sinna nefndunum en getur sett okkur inn í hjáverkum. Það tefur öll þessi mál. Pælið í því, það tefur vinnu þingmanna á mikilvægum málum á mikilvægum tímum eins og núna. Þess vegna er málið seint fram komið.

Hvers vegna dagskrártillaga? Dagskrártillaga þýðir að málið þarf að fara á dagskrá strax. Og það þarf að fara á dagskrá strax.