146. löggjafarþing — 31. fundur,  23. feb. 2017.

jafnréttisákvæði í frumvarpi um dómstóla.

[14:03]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég vil minna enn og aftur á, eins og við höfum gert áður, að dagskrá þingfundar á morgun liggur ekki fyrir og ekki næstu viku. Við höfum minnt á það nokkrum sinnum áður að mjög heppilegt væri að dagskrá, alla vega næstu viku ef ekki tveggja, væri ljós til þess að við gætum betur undirbúið okkur undir þau mál sem eru að koma. Ég hef alla vega hugmynd eða tillögu til forseta, ef það vantar mál á dagskrá er hérna frumvarp til laga um kjararáð sem er hægt að setja á dagskrá t.d. á morgun. Þetta er lausnamiðað.