dómstólar.
Frú forseti. Nú finnst mér í sjálfu sér ósköp eðlilegt að ef löggjafinn telur af einhverjum ástæðum að hann þurfi að hnykkja á hlutum þá geri hann það og segi það skýrt. Mig langar samt að spyrja hv. þingmann — ég veit að hún er ekki í allsherjar- og menntamálanefnd — hvort hún telji að hugsanlega hefðu menn líka þurft að endurskoða matsreglur dómnefndarinnar og þær aðferðir sem eru notaðar við að velja nefndarmenn. Af því að ég held að í öllu svona ráðningarferli sé betra að almennu skilyrðin og ákvæðin og sjónarmiðin, sem liggja til grundvallar, komi sem fyrst í ferlinu. Þetta er sjónarmið sem haldið hefur verið á lofti, m.a. af formanni Lögmannafélagsins, Reimari Péturssyni, sem skrifaði í Lögmannablaðið 2015, það var auðvitað til stuðnings öðrum sjónarmiðum til að auka fjölbreytni í dómarastörfum.
En ég tek eftir því, í reglum um störf dómnefnda sem eiga að fjalla um umsækjendur um dómaraembætti, að í 4. gr. eru fimm sjónarmið sem taka á mið af, þ.e. menntun og starfsferill, það eru aukastörf, það eru almenn starfshæfni, það er sérstök starfshæfni og það er andlegt atgervi. Fyndist hv. þingmanni að menn hefðu kannski líka átt að fara þarna inn og hnykkja á því þar með því sjötta um kynjasjónarmiðin?