146. löggjafarþing — 32. fundur,  24. feb. 2017.

dómstólar.

113. mál
[14:00]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Mig langar að vita hvort hv. þingmaður telur, af því að við þessar tilteknu aðstæður er verið að skipa svo marga dómara í einu, að þetta sé sérstaklega mikilvægt, en jafnframt hvort hún teldi þá nóg ef við endurskoðuðum þessar reglur og hnykktum á þessu jafnréttissjónarmiði þar — ráðherra fær svo hæfismatið í hendur og er þá bundin af jafnréttislögum og jákvæðri mismunun og hvað þetta nú heitir allt, hvort það nægði að fara þar inn.