146. löggjafarþing — 32. fundur,  24. feb. 2017.

dómstólar.

113. mál
[14:28]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég er ekki tilbúinn að fara í sátt um einhvern óþarfa. (RBB: Eins og lög um dómstóla?) Nei, þessi ákvæði sem verið er að gera tillögu að eru óþarfi. (KÓP: Skaðar það eitthvað?) Nei, skaðar eitthvað að hafa þau ekki? Ég segi bara að það breytir engu. Ég skil ekki af hverju menn koma með svona tillögu sem skiptir engu máli. Lagatextinn er skýr. (RBB: Það skiptir máli.) Nei. Hann skiptir máli vegna þess að í gildi eru lög um jafnan rétt karla og kvenna. Þar verður engu breytt. Þess vegna er þetta óþarfi. Og þess vegna segi ég: Hver er tilgangurinn með þessu? Er eini tilgangurinn með því að reyna að koma því einhvern veginn til leiðar að ráðherra þurfi ekki að fara eftir lagatextanum? Hver er tilgangurinn með þessu? Getur einhver sagt mér það? Getur hv. þingmaður sagt mér það? Það er ekki til skaða? Á ég að setja í öll frumvörp einhvern haug af setningum og textum af því að það sé ekki til skaða? (Forseti hringir.) Ég er bara að segja: Það er enginn bragur á þessu. (Gripið fram í: Mikill bragur …) Þetta hefur greinilega einhvern annan tilgang. (Gripið fram í.)