dómstólar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið en ég verð að leiðrétta hann, eins og ég leiðrétti hv. þm. Brynjar Níelsson. Ég sagði ekki að þetta væri bara táknrænt, ég tel þetta nauðsynlegt. Ég er fullkomlega sammála hv. þm. Loga Einarssyni. Hins vegar tel ég að þetta sé líka táknrænt og það sé í raun aukabónus sem fylgi að vilji löggjafans í þessum málum komi mjög skýrt fram.
Að öðru leyti er ég sammála því sem hv. þm. Logi Einarsson kom hér inn á hvað varðar áhyggjur af því að dómstólalögin séu sérlög sem gangi framar jafnréttislögum. Það þarf að skjóta stoðum undir það að þetta sé tekið upp í lagatextanum, sérstaklega þegar hver þingmaðurinn á fætur öðrum hefur komið hingað upp og sagt að það skipti í raun engu máli.
Breytingin er þá væntanlega engin. Slæmar afleiðingar þess eru engar að mati flutningsmanna meirihlutaálitsins, eins og ég hef skilið það. Ég bara sé ekki vandamálið. Ég verð að játa það hér. Ég bara skil ekki vandamálið.