146. löggjafarþing — 32. fundur,  24. feb. 2017.

dómstólar.

113. mál
[14:33]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Hér eru allir sammála um að dómstóllinn á að endurspegla jöfn kynjahlutföll og menn eiga að nýta þær greinar jafnréttislaga sem segja til um hvernig fara beri með ákvörðun þegar tveir aðilar eru jafn hæfir.

Ég legg til að þeir sem hafa tekið þátt í þessum umræðum setjist yfir þetta með sterkan kaffibolla og ræði hvernig hægt er að tryggja að þetta verði framkvæmt með þessum hætti.