146. löggjafarþing — 32. fundur,  24. feb. 2017.

dómstólar.

113. mál
[14:35]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Það er tvennt sem mig langar til að benda á, annars vegar það sem hv. þm. Kolbeinn Óttarsson Proppé sagði, að stjórnarmeirihlutinn hefði talað mikið gegn þessu máli. Það er ekki alveg rétt því að hv. þm. Jón Steindór Valdimarsson spurði einmitt hæstv. ráðherra hvort það væri ekki gott að hafa þau sjónarmið þar sem sérstaklega yrði horft til viðhorfa um jafnrétti kynjanna. Í framhaldi af því spyr maður, ef annar stjórnarflokkanna sem hefur tjáð sig í þessari umræðu hefur þá skoðun, af hverju sé þá ekki auðvelt að koma þessu inn í texta frumvarpsins.

Hitt sem mig langaði að koma inn á er að ekki er óalgengt að það sé tvítekning í lögum. Uppáhaldið mitt er 108. gr. laga um kosningar til Alþingis þar sem fimm af hundraði eiga að gilda um atkvæði sem þarf til þess að fá jöfnunarþingmann, en það er einnig að finna í stjórnarskránni. Þannig að verið er að tvítaka ákvæði sem er í stjórnarskránni. Þetta er ekkert óalgengt. Skaðsemin sem er kannski verið að hugsa um hérna er að möguleiki er á að jafnréttisákvæði séu ekki virt sérstaklega með tilliti til skoðana hæstv. ráðherra um þau mál, eins og hún hefur tjáð sig um þau hér á Alþingi, ef ekki þessi ráðherra þá er það kannski seinni tíma vandamál. En ég sé ekki vandamál við að hafa þetta. Ég satt best að segja skil ekki málflutning Sjálfstæðisflokksins, bara Sjálfstæðisflokksins, að vilja ekki hafa þessa litlu setningu aukalega (Forseti hringir.) í lögunum.