146. löggjafarþing — 32. fundur,  24. feb. 2017.

dómstólar.

113. mál
[15:25]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að benda hv. þingmanni á að slakasta kynjahlutfallið konum í óhag er hjá Samfylkingunni í augnablikinu, ekki að það skipti nokkru máli.

Þessi kvótaumræða, mér er hún óskiljanleg ef menn telja á annað borð mikilvægt að það sé sá hæfasti valinn í hvert sinn. Ef það væri ekki mikilvægt að sá hæfasti væri valinn og við værum með einhver störf þar sem skipti ekki meginmáli hver væri beinlínis hæfastur þá væri mér alveg sama um kynjakvóta, bara algjörlega sama.

En varðandi það að fara með þetta inn í þingið, að þingið fari ekki gegn nefndinni nema það séu einhver rök til þess að mat nefndarinnar sé vitlaust eða rangt, það er algjört skilyrði fyrir því. Menn geta ekki farið eftir geðþótta með einhverjum öðrum hætti að breyta mati nefndarinnar nema haldgóð rök séu fyrir því að matið sé rangt.