kvíði barna og unglinga.
Virðulegi forseti. Ég er hér með fyrirspurn til hæstv. heilbrigðisráðherra um kvíða barna og unglinga. Það hefur verið nokkur fjölmiðlaumfjöllun um þetta mál og líka fyrra málið sem ég kom hér fram með. Stuttu áður en ráðherratíð minni lauk átti ég mjög áhugaverðan fund með fulltrúum landlæknisembættisins og fulltrúum Rannsókna og greiningar, sem hafa verið að huga að lýðheilsu og hvernig börnunum okkar líði. Í þeim gögnum sem þau voru með á þessum fundi kom fram að frá árinu 2000 hefur æ meira borið á kvíða hjá börnum og unglingum, ekki hvað síst stúlkum. Það er sláandi að sjá þessar tölur, hve aukningin hefur verið mikil; jafnvel þótt maður horfi styttra til baka, jafnvel á síðustu fjórum árum.
Þetta er mjög ólíkt því sem við sjáum í öðrum tölum í þessum rannsóknum. Staða barnanna okkar er að mörgu leyti góð. Við sjáum að þau eru líkleg til að eyða tíma með foreldrum sínum, líkleg til að vera í tómstundum. Þau drekka minna, reykja minna. Sá árangur sem við höfum náð, í minni áfengis- og tóbaksneyslu barna og unglinga, hefur vakið athygli langt út fyrir landsteinana. En það má eiginlega orða það þannig að við sjáum rauð viðvörunarljós blikka æ hraðar varðandi aukna tíðni kvíða hjá börnum og unglingum og það einna helst hjá stúlkum.
Þeir sérfræðingar sem hafa verið að vinna að þessum rannsóknum hafa bent á ýmsar skýringar, þar á meðal aukna notkun samfélagsmiðla. Þeir tala um prófkvíða, inntöku í menntaskóla, fjárhag foreldra og frelsisskerðingu barna sem mögulega uppsprettu. En síðan er líka bent á að um 30–40% nemenda, sem svara þessum könnunum, sofa um 7 klst. eða minna á sólarhring og svo eru jafnvel nefnd dæmi um stúlkur sem sofa með símann við hliðina á sér og vakna við hverja tilkynningu sem Facebook sendir.
Við vitum, höfum það frá fræðimönnum, að kvíði hjá barni sem er ekki meðhöndlaður getur á nokkrum árum þróast yfir í þunglyndi og haft þannig alvarlegar afleiðingar; ýmsa áhættuhegðun, brottfall úr skóla og erfiðleika við að fóta sig á vinnumarkaði.
Í stjórnarsáttmálanum er talað um geðheilbrigðisþjónustu. Það er mjög gott. Það er talað um að auka aðgengi að henni, talað um sálfræðiþjónustu og heilsugæslu í framhaldsskólum og að veita aukinn stuðning við börn foreldra sem eru þá með geðvanda, ekki sérstaklega kannski minnst á börnin sjálf þarna, og svo er sálfræðiþjónusta felld undir tryggingakerfið í áföngum.
Ég vil nefna hér að fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, Karl Garðarsson, (Forseti hringir.) hafði lagt fram þingsályktunartillögu um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum barna og unglinga þar sem aðaláhersla er lögð á forvarnir, skimun, þrepaskipta meðferð og ýmislegt annað. Því vil ég gjarnan fá að heyra frá hæstv. ráðherra hvernig hann hyggist fylgja eftir stjórnarsáttmálanum og bregðast við þessum sláandi tölum.