146. löggjafarþing — 33. fundur,  27. feb. 2017.

kvíði barna og unglinga.

95. mál
[17:16]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Mig langar að þakka fyrir umræðna um þetta brýna málefni. Ég er líka ein af þeim sem voru að koma frá Færeyjum þar sem við áttum áhugaverða ráðstefnu í Vestnorræna ráðinu um jafnréttismál með sérstakri áherslu á stöðu karlmanna. Þar var komið inn á kvíða og þunglyndi. Þeir glíma við skuggalegar tölur í þeim efnum. Ég vil hvetja ráðherrann til að vinna með vinum okkar í þessum vestnorrænum löndum að því að skoða hvað er í gangi og hvort við getum brugðist eitthvað við í því efni.

Ég held reyndar líka að það sé mjög gott að hæstv. menntamálaráðherra og hæstv. heilbrigðisráðherra vinni saman að þessu efni. En mig langaði þó að koma þeirri skoðun minni áleiðis varðandi það sem bent var á áðan um aldurstakmark í framhaldsskóla að ég tel að það hafi ekki neitt með þetta að gera. Ég held reyndar að hafi verið ágætlega skynsamleg ráðstöfun. Það þarf nefnilega líka að huga að félagslegum aðstæðum krakkanna inni í skólanum. Ég þekki það úr skóla sem ég hef fylgst sérstaklega vel með að þar eru sextán ára börn og (Forseti hringir.) 25 ára og eldri sem eiga kannski ekki mjög margt sameiginlegt í framhaldsskólanámi. Það á þá að bjóða upp á aðrar lausnir fyrir þá sem eldri eru. Það er mikilvægt.