kvíði barna og unglinga.
Virðulegi forseti. Ég þakka þessa umræðu. Mig langar aðeins að koma hér upp í ljósi orða síðasta ræðumanns, hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur. Hér var ekki einungis rætt áðan um aldurstakmark heldur einnig þá staðreynd að framhaldsskólinn var styttur niður í þrjú ár. Hv. þm. Andrés Ingi Jónsson kom sérstaklega inn á það í ræðu sinni og það sérstaka aukaálag sem það hefur í för með sér fyrir þá nemendur sem þurfa allt í einu að klára menntaskólann á þremur árum í staðinn fyrir fjórum. Það getur líka aukið stressið og álagið enn frekar að hafa ekki svigrúm til að framlengja námið og taka þann tíma sem maður telur sig í raun þurfa til þess.