146. löggjafarþing — 34. fundur,  27. feb. 2017.

almannatryggingar.

150. mál
[20:37]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég skal vera alveg jafn heiðarlegur á móti: Ég hef ekki hugmynd um það heldur. Þess vegna spyr ég, og ekkert endilega hv. þingmann eða formann velferðarnefndar heldur varpa ég í rauninni þessari spurningu til okkar allra. Kannski var hv. þingmaður svo óheppin að vera akkúrat í pontu þegar mér kom það til hugar. En mér finnst þetta vera nauðsynleg spurning að spyrja okkur: Á hverjum værum við í raun að brjóta ef við settum afturvirka lagasetningu? Það er svo margt sem getur farið úrskeiðis í þess háttar vinnubrögðum. Það myndast ákveðin óvissa varðandi öll lög ef alltaf er hægt að leiðrétta þau afturvirkt seinna meir. Það er ekki mjög hjálplegt faglegum vinnubrögðum við lagasetningu. Ef við settum ekki afturvirk lög, myndi það breyta einhverju fyrir dómstóla varðandi allar skýringarnar sem koma með lögunum? Ef það gerir það ekki, af hverju erum við þá að reyna að troða þessari venju í rauninni upp á? Þessu fordæmi? Mér finnst það mjög erfitt mál. Ég hugsa sem svo: Afturvirk lagasetning? Það stingur mig einhvern veginn. Ég fæ einhver ónot í magann þegar ég hugsa um slíkt.