146. löggjafarþing — 34. fundur,  27. feb. 2017.

almannatryggingar.

150. mál
[20:39]
Horfa

Nichole Leigh Mosty (Bf) (andsvar):

Frú forseti. Rosalega léttir mér að vita að ég er ekki sú eina sem er með sting í maganum yfir þessu. En með afturvirkni erum við að árétta vilja löggjafans. Það er eitt sem ég get sagt hér. Allar vangaveltur og spurningar um hvað ef og svoleiðis, ég vildi að ég gæti svarað því. Ég vildi að ég gæti sagt til um, hvað ef snjóar meira á morgun? En ég get ekki svarað því, því miður. En þessi afturvirkni reynir að árétta vilja löggjafans.