almannatryggingar.
Frú forseti. Hæstv. formaður velferðarnefndar, ef hún er enn þá á svæðinu, nefnir réttilega að þarna eru miklir hagsmunir í húfi. Það hafa greinilega verið gerð mistök. Það getur verið alvarlegt. En það sem er alvarlegra er að mistökin voru ljós 20. janúar. Þá vissu menn að þeir hefðu gert mistök. Þá vissu menn að 2,5 milljarðar lægju undir í hverjum mánuði. En 27. febrúar er þingið að klára þetta mál og nú á að taka afturvirka ákvörðun til 1. janúar um að ekki eigi að greiða út þessa peninga. Hvers vegna var þingið ekki kallað saman fyrr? Hvers vegna var þetta ekki afgreitt fyrr? Það finnst mér mjög einkennilegt. Það er fúsk. Menn gera mistök. Frá 20. janúar byrjar fúskið. Við þurfum að komast til botns í því og væri ágætt ef formaður nefndarinnar — og ég sé að flutningsmaður meirihlutaálitsins, hv. þm. Vilhjálmur Árnason, er að biðja um að koma í andsvar við mig.
Þetta er mjög alvarlegt. Þá þurfum við að fá að vita: Hver tók ákvörðun um að ekki skyldi greiða þetta út? Var það Tryggingastofnun? Var það ráðherra? Ef það var ráðherra þurfum við að fá athugun á því. Ég hef talað við aðra meðlimi í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Samkvæmt 8. lið 1. mgr. 13. gr. laga um þingsköp Alþingis, segir, með leyfi forseta:
„Nefndin skal einnig hafa frumkvæði að því að kanna ákvarðanir einstakra ráðherra eða verklag þeirra sem ástæða þykir til að athuga á grundvelli þess eftirlitshlutverks sem Alþingi hefur gagnvart framkvæmdarvaldinu. Komi beiðni um slíka athugun frá a.m.k. fjórðungi nefndarmanna skal hún fara fram. Um athugun sína getur nefndin gefið þinginu skýrslu.“
Formaður nefndarinnar vill sjálfur fá að vita það. Ég geri ekki ráð fyrir öðru en að nefndin fari þá að skoða það því að þetta er mjög alvarlegt mál. Og svo er verið að segja hérna að ráðuneytisstofnanir geti bara fylgt anda laganna. Eiga þeir þá að lesa í anda laganna en ekki lagatextann? Það þurfum við líka að fá að vita því að það er mjög alvarlegt. Og svo er líka sagt að þingið eigi að bregðast við eins fljótt sem hægt er ef svona brotalamir eru. Nei, það var ekki gert. Hér var ekki verið að fylgja anda laganna. En síðan er anda laganna ekki fylgt varðandi kjararáð. Og á morgun stöndum við frammi fyrir því að forsendunefnd ASÍ og SA munu segja okkur hvort kjarasamningar 70% launafólks, 100 kjarasamningar, séu í uppnámi. Ekki hefur Alþingi gripið inn í eins og sagt var að þyrfti að gera, ekki bara varðandi laun þingmanna heldur ráðherra og annarra sem heyra undir kjararáð, ekki gerði Alþingi gert það þá þegar anda laganna var ekki fylgt. Þannig að afturvirkt skulu tekin þau réttindi sem voru til staðar.
Og þá komum við að því: Hvers vegna hafði fólk mögulega ekki réttmætar væntingar til þess að það ætti að fá þessar greiðslur? Það var vegna þess að annaðhvort vegna fyrirskipunar frá ráðherra eða stjórnsýslustofnun, Tryggingastofnun, var ákveðið að greiða ekki út þessa peninga þótt að lögin segðu til um það. Þess vegna vissi fólk ekki af því að það ætti að fá þessar greiðslur.
Það sem við þurfum að fá að vita er: Hvers vegna var þetta svona? En Alþingi ætlar að setja lög, afturvirk í þessu tilfelli, af því að anda laganna var ekki fylgt. En Alþingi ætlar ekki að setja lög þegar anda laganna er ekki fylgt varðandi þeirra eigin laun. Og svo stöndum við frammi fyrir hugsanlegri hrinu verkfalla í kjölfarið á því. Það eru aðrir kjarasamningar sem endurskoða þarf á árinu. Það virðist vera tónninn. Við verðum að fá svör við þessu í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd á morgun. Ég mun byrja á að kalla eftir svörum þar. En það væri áhugavert að heyra hvað formaður nefndarinnar, hv. þm. Nichole Leigh Mosty, og hv. þm. Vilhjálmur Árnason, framsögumaður meiri hluta, hafa um málið að segja.