almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Ég get nú alveg viðurkennt að ég er alveg hættur að átta mig á því hvað er fúsk og hvað ekki hér. Annaðhvort vinnur maður þetta allt of hratt eða allt of hægt. (Gripið fram í.) En til að ég geti farið yfir hvernig þetta mál var unnið, ég er ekki að tala um niðurstöðuna, en eins og málið var unnið var það í algerri sátt innan velferðarnefndar. Þar ræddum við okkur bara niður á niðurstöðu í mjög góðri samvinnu nefndarinnar. Við upplýstum alla nefndarmenn um leið og málið kom til nefndarinnar hvenær málið yrði lagt fram, hvað yrði undirbúið áður, hvaða gestir yrðu teknir fyrir og hvernig ferli málsins ætti að vera. Það er þess vegna sem við erum að klára þetta í dag.
Nefndin fékk þetta til sín í byrjun febrúar eftir að búið var að greiða. Nefndin hafði því ekkert um það að segja. Við getum ekki svarað nákvæmlega fyrir hvernig þetta var innan stofnananna. Ég geri ráð fyrir, alla vega í upphafi, að eftir alla þá vinnu sem hafði farið fram við undirbúning þessarar lagasetningar þá voru allir sammála um hvernig lögin ættu að vera. Svo var verið að breyta þeim aðeins. Mistökin koma að miklum líkindum til út af því að örorkulífeyrisþegar og ellilífeyrisþegar fylgja ekki í lokin. Þess vegna þarf að gera breytingu. Það er kannski svona grunnástæðan fyrir mistökunum. En um leið og þetta kemur í ljós er farið að vinna eftir því. Þess vegna erum við að klára þetta núna fyrir 1. mars. Við kölluðum gesti til nefndarinnar og reyndum að gera þetta þannig að við gætum unnið þetta vel en samt eins hratt og við þyrftum.