146. löggjafarþing — 34. fundur,  27. feb. 2017.

almannatryggingar.

150. mál
[21:12]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Mig langar að spyrja hv. þm. Pawel Bartoszek hvort hann sé ekki sammála því sem ég nefndi áðan í ræðu minni varðandi það að við þurfum að skoða hver sé ábyrgur fyrir þessari ákvörðun. Það er nokkuð ljóst að það að féð var ekki greitt út, og þar af leiðandi þarf ekki að innkalla það, skapaði þær kringumstæður að væntingarnar voru ekki til staðar. Hver hafði heimild til þess að ákveða það fyrst lögin sögðu að það ætti að greiða þetta út? En andi laganna var öðruvísi.

Er hv. þingmaður ekki sammála því að við þurfum að komast til botns í því hvort menn hafi meðvitað ákveðið sem ríkisstofnun og hugsað með sér: „Við lesum bara í gegnum anda laganna, við ætlum bara að túlka anda laganna og fara eftir anda laganna en ekki eftir lagabókstafnum“? Vissi ráðherra af þessu? Hæstv. ráðherra sagði að þetta hefði meira verið einhvers konar ferli. Er hv. þingmaður ekki sammála því að við þurfum að komast til botns í því hver er ábyrgur fyrir þessu og þurfum að geta komið í veg fyrir þetta í framtíðinni?