146. löggjafarþing — 34. fundur, 27. feb. 2017.
almannatryggingar.
150. mál
Virðulegi forseti. Ég ítreka að ég er ekki það vel inni í þeim málum, ég er ekki í velferðarnefnd, en þeir meðlimir velferðarnefndar sem komið hafa hér upp hafa skýrt vel frá því hvernig það mál kom upp, að það hafi verið ætlunin að undirbúa málið nægilega vel þannig að það gæti hlotið góða afgreiðslu innan (Gripið fram í.)þingsins. En eins og ég segi, ég get einungis svarað varðandi þær aðstæður sem ég þekki en ekki þær aðstæður sem ég þekki ekki.