almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Punkturinn um þjóðarhag er í þessu samhengi alveg skiljanlegur og gildur. Ég talaði um réttarríkið áðan og þau rök sem hv. þm. Pawel Bartoszek notaði áðan eru nytjarök, þ.e. ef það kemur betur út ættum við að gera það. Svo ég gerist plebbalegur þá langar mig að vitna í að John Stuart Mill, sem er þekktur fyrir nytjahyggju sína, útfærði nytjahyggju föður síns James Mill og Jeremys Benthams á þann hátt að við þyrftum samt sem áður að virða ákveðnar samfélagslegar reglur, þannig að hagur heildarinnar sé til lengri tíma litið virtur frekar en að tímabundnir hagsmunir trompi stöðugt þessa reglu — þá erum við að tala um mannréttindi og réttarríkið sem er það sem ég minntist á áðan.
Mig langar sum sé til þess, eftir þennan heimspekilega útúrdúr, að spyrja hv. þingmann hvort hann telji almennt að löggjafinn eigi að geta metið það hverju sinni hvort það sé þjóðarhagur að ganga á svig við þau lög sem eru í gildi í landinu. Ef niðurstaða löggjafans er sú að það sé þjóðarhagur þá beri löggjafanum að brjóta þau lög sem eru í gildi í landinu.