146. löggjafarþing — 36. fundur,  28. feb. 2017.

störf þingsins.

[13:44]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf):

Frú forseti. Við áttum hér í þinginu erfiðan og krefjandi fund í gær að kveldi bolludags. Samþykktar voru um síðir breytingar á hinum margflókna lagabálki um almannatryggingar nr. 116/2016. Ýmisleg efunarmál og vafaatriði leituðu á hugann og ollu heilabrotum en loks varð auðvitað niðurstaðan sú sem endurspeglast í eigin sannfæringu og lífsskoðun og birtist í áliti 1. minni hluta velferðarnefndar sem við hv. þm. Pírata Halldóra Mogensen stóðum að.

Það sem miklu réð var sú skoðun að í svo alvarlegu vafamáli væri skylda okkar að taka stöðu með almenningi sem er skjólstæðingar okkar, en ekki ríkisvaldinu sem er gerandi og ofurafl í þessu máli.

Umfjöllun um þetta tilvik, þessa misfellu í texta, stóð í skamman tíma, eðli málavöxtu samkvæmt. Umræðan í velferðarnefnd var markviss, heiðarleg og lausnamiðuð. Nefndin fékk fagfólk og hagsmunaaðila á sinn fund í skyndingu og skipst var á skoðunum og aflað upplýsinga eftir föngum.

Niðurstaða 1. minni hluta er sú að fordæmi og áhættan með ákvæði um afturvirkni sé svo varasöm og geti skapað óöryggi og óvissu um lagagerð og framkvæmd þeirrar almennt, að landsmenn eigi kröfu á vönduðum vinnubrögðum og að reiða megi sig á lagatextann eins og hann ber fyrir augu hverju sinni.

Rætt hefur verið um að breyta þurfi verklagi við undirbúning og verklagi við lagagerð. Nú er lag og þörf. Mikilvægast af öllu er að við látum ekki sitja við orðin tóm, að við bætum vinnubrögðin með sérstökum aðgerðum þannig að lög landsins verði án vafa læsileg, aðgengileg og skiljanleg bæði lærðum og leikum. Sú spurning situr eftir: Hvað ætlar þingið að gera til að afstýra því að tilvik sem þessi endurtaki sig?


Efnisorð er vísa í ræðuna