verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Nei. Þær eru ekki endilega andstæður, hugmyndin um frjálslyndi annars vegar og hugmyndin um nytjahyggju hins vegar. Þær geta stundum farið saman og stundum ekki. En það er ekki hægt að halda því fram að þó að maður sé almennt séð tilbúinn að stíga skref í ákveðna átt þá sé maður ekki samkvæmur sjálfum sér nema maður vilji afnema öll bönn alltaf og alltaf. Ég er alveg til í, eins og ég hef sagt áður, að skoða ýmsar takmarkanir og hömlur á sölu þess efnis eins og hv. þingmaður vill líka. En sú leið að einskorða sölu áfengis við smásölu í ríkisstofnun er ekki ein af þeim leiðum sem eru í mínum verkfærakassa.