opnun neyðarbrautarinnar á Reykjavíkurflugvelli.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Kolbeini Óttarssyni Proppé fyrir andsvarið öðru sinni. Í tillögunni segir:
„Alþingi ályktar að fela samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að beita sér fyrir því að norðaustur/suðvestur-flugbrautin á Reykjavíkurflugvelli verði opnuð á ný svo fljótt sem verða má. Ráðherra láti útbúa aðgerðaáætlun í þessa veru og upplýsi Alþingi um innihald hennar eigi síðar en í maí 2017.“
Þetta er skammur tími. En málið er líka afskaplega brýnt. Við getum ekki beðið eftir því að heilbrigðiskerfið verði lagað. Hvað þýðir það að laga heilbrigðiskerfið? Það er margt gott þar og það er önnur umræða. En það þýðir að við getum ekki beðið eftir því. Þetta mál er mjög aðkallandi. Þeir atburðir hafa gerst að það þurfti að nota þessa braut og það var ekki hægt. Það er óásættanlegt. Við viljum ekki að fólk búi við misjafnt öryggi og mismunandi aðbúnað varðandi þetta. Við verðum að hafa þetta í svo góðu standi sem kostur er þannig að við köllum eftir því að ráðherra fari í málið, finni leiðir til lausna. Ég ætla ekki að segja ráðherra nákvæmlega hvernig hann eigi að vinna. Það er ekki í mínu valdi og það er ekki á mínu verksviði. En ég óska eftir því að hann fari í málið og vinni hratt og vel. Auðvitað þarf að kalla til fólk, það þarf að fara í eitthvert samtal og eitthvert samráð, ég efast ekki um það. En þetta gengur ekki lengur.