146. löggjafarþing — 36. fundur,  28. feb. 2017.

opnun neyðarbrautarinnar á Reykjavíkurflugvelli.

156. mál
[23:29]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Við ræðum svo sannarlega mikilvægt mál hér, mál sem hefur verið í ágreiningi allt of lengi. Ég er hjartanlega sammála hv. þm. Loga Einarssyni um að það er mikilvægt að ná sátt í þessu máli. Þá er gott til þess að vita að eitt af því sem er á stefnuskrá hæstv. ríkisstjórnar er að beita sér fyrir lausn á þessari áratugalöngu deilu um framtíð Reykjavíkurflugvallar með því að stofna til formlegra viðræðna samgönguyfirvalda, heilbrigðisyfirvalda, Reykjavíkurborgar, annarra sveitarfélaga og hagsmunaaðila. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt.

Mig langar í þessu stutta andvari að heyra frá hv. þingmanni hvaða lausn hann telur vænlegasta. Ég heyrði að hann nefndi áðan að ríkið þyrfti að skaffa, ef ég tók rétt eftir svona seint að kvöldi, Reykjavíkurborg landsvæði til að byggja inn á við. Ég stend sjálf í þeirri trú að það skorti svo sem ekki, það sé nóg land til að byggja inn á við á höfuðborgarsvæðinu, en það væri gaman að heyra betur frá þingmanninum um þetta því að ég veit að hann þekkir málið býsna vel.

(Forseti (UBK): Forseti vill minna hv. þingmann á að ávarpa hv. þingmenn á tilhlýðilegan hátt.)

Afsakið, ef mér hefur misfarist það, forseti, en ég var að vísa til hv. þm. Loga Einarssonar og ég veit til þess að hv. þingmaður þekkir þetta mál býsna vel frá mörgum hliðum. Það væri gaman að heyra hvort hv. þingmaður hafi þessa lausn sem við höfum svo lengi verið að bíða eftir.