146. löggjafarþing — 37. fundur,  1. mars 2017.

opnun neyðarbrautarinnar á Reykjavíkurflugvelli.

156. mál
[16:27]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Varðandi skipulagsvaldið eins og ég sagði áðan þá hef ég talað fyrir því að við gætum byrjað þetta ferli varðandi þessa hluti á að allir alþjóðaflugvellirnir fjórir færu undir skipulagsvald ríkisins, það er Keflavíkurflugvöllur, eins og hann er í dag, Reykjavíkurflugvöllur, Egilsstaðaflugvöllur og Akureyrarflugvöllur. Þetta eru þeir fjórir flugvellir sem halda uppi alþjóðaflugvallakerfinu í landinu og flugvallakerfinu sem skiptir okkur mestu máli. Það eru engin ný sannindi í því, ég hef talað fyrir þessu í mörg ár og komið fram í fjölmiðlum.

Það sem ég er líka að vekja athygli á er að íslensk stjórnsýsla hefur fram að þessu bara ekki tekið á þessu máli sem ég benti á áðan varðandi sjúkraflugið, varðandi heilbrigðisþjónustuna og annað. Hugsið ykkur það hvernig þetta er í dag. Við erum með Landspítalann, ef ég man rétt úr fjárlögunum sem við vorum að samþykkja núna í desember hér á þingi, sem tekur til sín um 60 milljarða, Sjúkrahúsið á Akureyri 8 og mig minnir að sjúkrahúsið á Austurlandi taki 1 milljarð, til að sýna ykkur hlutföllin. Við erum bara með eitt sjúkrahús sem er af þessum standard sem þar er og helmingurinn af sjúkrafluginu sem við erum að tala um — voru það ekki 711 eða hvað voru margir með Mýflugi í fyrra? — er í forgangsflugi. (LE: … staðist stjórnarskrá?) Ég vil benda hv. þingmanni á að það kemur forskrift í héraðsdómi í fyrra í apríl, þegar dæmt er í Héraðsdómi Reykjavíkur, og dómari raunverulega bendir ríkinu á það hvernig það geti leyst þetta mál. Ég tek það kannski á eftir ef ég kem því að, ég sé að tíminn er búinn.