opnun neyðarbrautarinnar á Reykjavíkurflugvelli.
Virðulegi forseti. Umræðurnar hérna áðan milli tveggja þingmanna, sem eru hvor úr sínum flokknum en báðir koma frá Akureyri, endurspegla mjög hversu furðuleg umræðan er búin að vera um þetta mál mjög lengi. Ég veit ekki annað en að þessir tveir ágætu herrar séu sammála um að Reykjavíkurflugvöllur sé mjög mikilvægur fyrir okkur þar sem þar er innanlandsmiðstöð og sjúkraflug sem næst Landspítalanum. Akureyri hefur, eins og mörg önnur bæjarfélög á Íslandi, barist fyrir því að Reykjavíkurflugvelli verði ekki lokað eða farið með hann annað fyrr en eitthvað annað augljóslega jafn gott liggur fyrir.
Annar þingmannanna, hv. þm. Logi Einarsson, er fulltrúi Samfylkingarinnar. Samfylkingin er með, held ég, 40% hérna í Reykjavík nú um stundir og hefur verið í meiri hluta býsna lengi. Sá hópur sem stýrir borginni virðist ekki hlusta á Samfylkingarþingmenn landsbyggðarinnar, sama úr hvaða flokki þeir eru. Það sama á við um hv. þm. Njál Trausta Friðbertsson úr Sjálfstæðisflokknum. Sjálfstæðismenn hér í borginni hafa heldur ekki hlustað á sjónarmið bæjarfulltrúa og sveitarstjórnarfulltrúa Sjálfstæðismanna hringinn í kringum landið, það ákall um að Reykjavíkurflugvöllur verði hér áfram miðstöð, heldur hafa borgarfulltrúar Sjálfstæðismanna í Reykjavík ekki hikað við að vaða fram fyrir skjöldu og segjast vilja að loka Reykjavíkurflugvelli.
Okkur Framsóknarmönnum finnst umræðan vera stórkostlega sérkennileg, að við séum að fjalla um innanlandsmiðstöð, flug, sjúkraflug Íslands, alls landsins, sem eitthvert karp á milli borgarfulltrúa hér í höfuðborginni og allra annarra. Það mál þvælist bara áfram ár eftir ár jafnvel þótt til séu grasrótarsamtök sem hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson er varaformaður í, ef ég man rétt, Hjartað í Vatnsmýrinni, með 70.000–80.000 meðlimi. Skoðanakannanir sýna trekk í trekk að meiri hluti landsmanna og borgarbúa vill að miðstöð innanlandsflugs sé á Reykjavíkurflugvelli þangað til eitthvað annað augljóslega jafn gott eða betra liggur fyrir. Samt heldur þetta mál áfram. Samt loka menn neyðarbraut þrátt fyrir að forsendurnar sem lágu fyrir lokuninni hjá Eflu, Isavia eða þeim aðilum sem tóku þá ákvörðun og að lokum stjórnsýslunni á Íslandi, hafi verið rangar. Það tekur enginn í bremsuna og segir: Hvaða rugl er þetta? Ætlum við virkilega að halda áfram þessu karpi í þingsal eða á milli landsmanna, milli hluta borgarbúa, meiri hlutans í borginni og allra annarra landsmanna um það lykilöryggismál að hægt sé að sinna sjúkraflugi og koma sjúklingum inn á Landspítalann eins hratt og hægt er?
Hér setur sama borg og sama borgarstjórnsýsla upp plan um að sjúkraflutningar og slökkvilið hafi átta mínútna viðbragð hvar sem er innan borgarmarkanna og byggir upp miðstöðvar sínar miðað við það. Við sem búum úti á landi sættum okkur við 30–40 mínútur. Flug tekur oft tvöfaldan þann tíma, vegna þess að það er bara ein vél á Akureyri sem þarf stundum að fljúga annað og koma svo hingað. En hér er verið að tala um að loka brautinni þannig að ekki sé hægt að lenda. Snýst málið virkilega enn um karp um skipulagsvald sveitarfélaga eða um það hvort setja eigi lög? Er það virkilega þannig að borgarstjórnarmeirihlutinn í Reykjavík ætli bara að halda þessu máli áfram eins og ekkert hafi í skorist og ekkert komi upp á? Ætlar ríkisvaldið og Alþingi bara að horfa á það gerast? Við getum það ekki. Þess vegna er þessi þingsályktunartillaga lögð fram. Hún er áskorun á samgönguráðherra og ríkisstjórn um að grípa til aðgerða, hverra þeirra sem þarf.
Ef það er rétt hjá hv. þm. Loga Einarssyni, hugsanlega eftir samskipti við hans ágætu kollega í meiri hlutanum í Reykjavíkurborg, að möguleiki sé á sátt, þá þarf samtal. Ég hef ekki orðið var við að það samtal hafi átt sér stað. Mig minnir að síðastliðið sumar hafi þáverandi hæstv. innanríkisráðherra skrifað borginni bréf og óskað eftir samtali. Ég hef ekki orðið var við fréttaflutning af því að það samtal hafi orðið að veruleika. Ég hef hins vegar séð fréttaflutning um að borgin sé tilbúin í samtal við amerískt fyrirtæki, Airbnb, um að setja þeim reglur um hvernig þeir megi haga sér í borginni. Margar borgir hafa reyndar sett reglur án þess að tala við þetta ameríska fyrirtæki, en borgin er ekki tilbúin til samtals við ríkisvaldið um þá lágmarksöryggiskröfu að hér sé hægt að fljúga sjúkraflug á Landspítalann á eins stuttum tíma og hægt er. Það liggur ekkert annað fyrir.
Menn hafa fabúlerað um Hvassahraun. Skoðuðu þeir eldfjallavána, mögulegt gos, hraun, yfir þann ágæta stað? Skoðuðu menn að þar er aðaluppspretta eða geymslubúr vatnsforðans fyrir Reykjanes, Suðurnesin? Ætlum við ekki að ganga um almenningsvatn og gæðavatn af sömu nákvæmni og við göngum um Gvendarbrunna og annað? Skiptir það minna máli af því að við þurfum bara að koma flugvellinum út úr Reykjavík sem fyrst? Hefði þá ekki þurft að taka fleiri ákvarðanir um að koma sjúkrahúsinu út úr Reykjavík og taka 20–30 ár í þetta eða 40 og skipuleggja það og gera það þá af einhverju viti?
Hvernig getur það staðist að við séum að karpa um þetta mánuð eftir mánuð, ár eftir ár, í þessum sal við sjálf okkur?
Ég tel að sú tillaga sem lögð er fram af okkur Framsóknarmönnum, undir forystu þingflokksformanns okkar, Þórunnar Egilsdóttur, sé þess eðlis að hún ætti að renna hér í gegn. Ég tel að hæstv. samgönguráðherra ætti að taka niðurstöðuna til sín. Ég veit að hér er í salnum eru miklu fleiri á því að það þarf að gera eitthvað en bara við átta sem erum á þingsályktunartillögunni. Það hef ég heyrt af umræðunni í salnum og af fyrri umræðu um málið.
Við teljum sem sagt nauðsynlegt að fundin verði einhver leið til þess að opna hana strax aftur áður en menn fara í eitthvað annað. Það er ekki búið að finna neina framtíðarlausn. Það er grundvallaratriði að þetta er öryggismál. Og það er grundvallaratriði sem margir hafa sagt, og hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson fór mjög vel yfir það í máli sínu, að Alþjóðaflugmálastofnunin hefur bent á að forsendurnar séu rangar sem lagðar voru til grundvallar. Er það ekki nóg til þess að menn taki málið upp á nýjan leik?
Við þá þingmenn flokka sem eiga tengsl inn í þá flokka sem eru í meiri hluta í Reykjavíkurborg, vil ég segja: Ég bið ykkur um að tala við kollega ykkar. Það getur ekki gengið að þið þurfi að verja ákvarðanir sem þar eru teknar sem virðast ganga þvert gegn hagsmunum landsmanna allra, líka borgarinnar.
Frú forseti. Það er grundvallaratriði að forsendur og úrvinnsla við áhættumat um flugöryggi séu réttar þegar menn taka slíkar afdrifaríkar ákvarðanir um að loka einstökum flugbrautum eða færa flugvelli á brott.