146. löggjafarþing — 37. fundur,  1. mars 2017.

opnun neyðarbrautarinnar á Reykjavíkurflugvelli.

156. mál
[16:42]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Hér er málið ekki endilega bara að þvælast fyrir pólitík. Ég er að benda á að málið er farið að þvælast fyrir því að Hæstiréttur er búinn að tala. Hv. þingmaður segir að við séum nýkomnir, hv. bæjarfulltrúar, inn á þing og umræðan hafi færst hingað. Það hefði þá kannski verið betra ef við hefðum komið fyrir nokkrum árum inn á þing og hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson hefði verið í sveitarstjórn í nokkur ár, þá væri málið kannski komið á rekspöl. Hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson sat í síðustu ríkisstjórn. Ég gat ekki séð að hann hafi með sýnilegum hætti, alla vega ekki formlegum, beitt sér fyrir því að leysa þetta mál sérstaklega, ekki með öðrum hætti en með samkomulaginu sem var gert 25. október 2013. Þessi þingsályktunartillaga gengur þvert á það. Það er það sem ég er að tala um. Af hverju getum við ekki einsett okkur að fara að tala saman eins og fólk, vinna saman, leita samstarfs við sveitarstjórnir úti á landi, sveitarstjórnirnar á höfuðborgarsvæðinu? Við erum öll sammála um að það þarf að leysa þetta mál. En ég tel að þetta sé ekki rétta leiðin.

Að lokum ein stutt spurning. Miðað við þann langa aðdraganda og þann einbeitta vilja sem margir samgönguráðherrar og margar ríkisstjórnir hafa lýst yfir þess efnis að loka neyðarbrautinni, 25 ár aftur í tímann, heldur hv. þingmaður að það mundi ganga, að það yrði tekið mark á því að ganga gegn dómi Hæstaréttar? Ég efast um það. Ég vil fá öryggi fyrir alla landsmenn. Ég vil fá öryggi með sátt.