146. löggjafarþing — 37. fundur,  1. mars 2017.

opnun neyðarbrautarinnar á Reykjavíkurflugvelli.

156. mál
[16:44]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Ég veit ekki hvort þetta hefur gengið miklu betur hjá hv. þingmönnum. En til að upplýsa hv. þingmann hefur sá sem hér stendur verið í sveitarstjórn í 15 ár. (Gripið fram í: … nokkur ár í viðbót?)

Málið er þetta: Ég sem forsætisráðherra beitti mér að sjálfsögðu fyrir því að gerðir yrðu ákveðnir hlutir, m.a. var skrifað bréf af hálfu innanríkisráðherra til borgarstjórnar Reykjavíkur og beðið um samtal, samræðu, sem mér vitanlega hefur ekki enn átt sér stað, í mínum tíma. Ég hef hins vegar hvorki verið innanríkisráðherra né forsætisráðherra á öðrum tíma. Ég get ekki talað fyrir því.

Í þessari þingsályktunartillögu, í síðustu setningu hennar er sagt, með leyfi forseta:

„Í því skyni er lagt til að ráðherra beiti sér í málinu, hvort heldur með sérstakri lagasetningu um Reykjavíkurflugvöll eða á annan hátt,“(Gripið fram í.) — eða á annan hátt — „og greini Alþingi frá aðgerðaáætlun um opnun neyðarbrautarinnar eigi síðar en í maí 2017.“

Tilgangur þessarar þingsályktunartillögu er að lýsa yfir vilja Alþingis til þess að gengið verði í að hlusta á öryggismál og að eitthvað verði gert. (Gripið fram í.) Með hvaða hætti? Þegar ráðherrann hefur komist að niðurstöðu um hvað skal gera skulum við taka umræðu um það. En hér er lagt til að ráðherrann geri eitthvað sem endi með því að flugbrautin, neyðarbrautin, verði opnuð á nýjan leik. (LE: Þið opnið á lagasetningu á …)